157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:24]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég gleðst yfir að heyra að þingmaðurinn treysti þjóðinni. Ég ætla líka að vona að hann sé upplýstur um það eins og ég að verði það þannig að niðurstaðan verði já 29. ágúst þá fara af stað hinar eiginlegu aðildarviðræður og þá munum við finna út úr því hvort allar þessar staðhæfingar standi eða ekki, sama hvað segir í einhverjum bæklingum eða á einhverjum heimasíðum. Svo mun þjóðin fá að kjósa aftur.

Mig langar að spyrja þingmanninn sem sér ýmislegt þessu til foráttu. Eitt af því er dagsetningin, að 29. ágúst sé alveg vonlaus, og hann talar um að færa þetta um mánuð. Hvers eiga bændur eins og við Þórarinn Ingi þá að gjalda? Þá erum við að smala. Þannig að ég spyr: Nú er þetta þjóðarinnar. Nú er hægt að kjósa utan kjörstaðar. Er þetta ekki bara fínasti tími þegar fólk er að koma heim úr sumarfríum?