157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:27]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég vil meina það að hann skjálfi á beinunum, hvort sem það er vegna meiðsla eða ekki. En já, ég hef kynnt mér það sem Marta Kos sagði við NRK og það er alveg ljóst að hún er algerlega á sama máli og heimasíður ESB og bæklingar ESB, sem eru talaðir hér niður af meiri hlutanum. Einhverjir bæklingar og einhver heimasíða, sagði þingmaður meiri hlutans hér áðan. Einhverjir og einhver — þetta eru heimasíður stofnunarinnar sem ríkisstjórnin vill ganga til liðs við. Þannig að já, ég hef lesið þetta. Það kemur alveg fram hjá Mörtu Kos að það þurfi að ganga að þessu regluverki ESB og það er þannig, enda er það eðli sambanda sem gengið er í, það geta ekki allir verið með varanlegar undanþágur. Menn geta samið um tímabundnar undanþágur eða einhvers konar sérlausnir sem hægt er að trompa með einu pennastriki.