þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Vísindin sem hann byggir á eru hlaðvarpsviðtal við prófessor í Evrópurétti, ef ég skil hann rétt. Sú sem hér stendur er reyndar ekki prófessor í Evrópurétti en er vissulega með framhaldsmenntun, viðbótarmastersgráðu, í Evrópurétti. Mig langar til þess að benda hv. þingmanni aftur á það að opinberar upplýsingar um það sem við höfum tekið og ekki tekið upp hér í okkar löggjöf gegnum EES-samstarfið er hægt að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Sú skýrsla er skrifuð og byggð á upplýsingum frá EFTA-skrifstofunni. Dregur þá hv. þingmaður í efa opinber gögn og skýrslur frá utanríkisráðuneytinu og vísar frekar til einhvers hlaðvarpsviðtals, einhvers þáttar sem ég á reyndar eftir að hlusta á? Það er númer eitt.
Í öðru lagi langar mig að spyrja hv. þingmann að því hvort hann geri þá fyrirvara varðandi inngöngu Íslands í Evrópusambandið að sett séu ákveðin skilyrði? Værum við þá upplýst um þau skilyrði? Hv. þingmaður vísaði hér í ræðunni sinni til skilyrða, eða markmiða, sem voru sett árið 2009 (Forseti hringir.) en á heimasíðu Samfylkingarinnar segir, með leyfi forseta, „Samfylkingin vill stefna að fullri aðild Íslands að Evrópusambandinu“, án nokkurra fyrirvara að því er virðist.