þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Takk fyrir þetta annað andsvar. Við erum ekki að tala um hvern sem er heldur helsta sérfræðing Íslands í Evrópurétti sem leggur það mat á að þetta séu 75%. (DME: En skýrsla utanríkisráðuneytisins?) Það gerir ekkert lítið úr þessum upplýsingum að þær komi fram í hlaðvarpi eins og mér fannst þingmaðurinn vera að gefa til kynna. Eins og ég nefndi hér áðan þá byggir gamla skýrslan á því að telja öll bréf og stjórnsýsluúrskurði sem fjölga einhvern veginn því sem geta kallast gerðir (Gripið fram í.)en eru ekkert meginmál. Ég treysti Gunnari Þór Péturssyni, okkar helsta sérfræðingi í Evrópurétti, miklu betur en þessu gaspri hér úr þingsal til að kæfa það sem satt er, sem er það að EES-samningurinn felur í sér 75% af allri löggjöf í Evrópusambandinu. (Gripið fram í: Þvílík lygi.) Punktur.(Gripið fram í: Haugalygi.)