þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og tilefnið til að rifja upp hvernig Samfylkingin stóð að því að marka sér stefnu í Evrópumálum. Það er alveg rétt að Samfylkingin varð til úr fjórum flokkum og fólki alls staðar að úr samfélaginu sem kom með alls konar skoðanir og nesti inn í það. Það var gert með því að kalla til fólk og fræðimenn til að leggja grunn að umræðunni, efna síðan til fundahalda um allt landið og fara í almenna atkvæðagreiðslu meðal allra flokksmanna í Samfylkingunni um hvert skyldi stefna í Evrópumálum. Niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu var afgerandi; Samfylkingin væri Evrópuflokkur og hún hefur verið það alla tíð síðan.
Ef þetta vefst eitthvað fyrir þingmanninum varðandi gildi tollabandalaga og efnahagslegs öryggis í heiminum þá má vísa til reynslunnar á Grænlandi en líka ítarlegrar greinar Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem heitir „Efnahagslegar landvarnir“ og birtir bara mjög afdráttarlaust greiningu á því hvað er í húfi í þessum málum (Forseti hringir.) og brýnir okkur og alla Íslendinga til að halda vöku okkar vegna hagsmuna Íslands (Forseti hringir.) í þessum viðsjárverða heimi.