þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þetta andsvar. Já, ég var beinlínis að draga upp mynd af breyttum heimi. Við verðum að horfast í augu við að heimurinn er að breytast og það eru beinlínis þjóðarhagsmunir að við bregðumst við og fáum þjóðina í samtal um hvernig rétt sé að bregðast við. Að mínu mati eru mjög sterk rök fyrir því að nánara samstarf við líkt þenkjandi Evrópuríki sé skynsamlegasta leiðin í núverandi stöðu fyrir þjóðarhagsmuni Íslands, fyrir samkeppnishæfni atvinnulífsins og fyrir heimilin. En mér heyrist formanni Miðflokksins hafa sárnað að ég sagði, og mér finnst það bara eðlilegt, að Miðflokkurinn þyrfti auðvitað að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi tengsl við MAGA-hreyfinguna sem við lásum um í erlendum fjölmiðlum — það var óþægilegt, eins og formaður Miðflokksins myndi orða það — nánar tiltekið í norskum fjölmiðlum sem höfðu það bæði eftir heimildum í Bretlandi og í Bandaríkjunum og tilgreindu fundi bæði á þessu ári og því síðasta sem ég held að verði að skýra frá.