157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér hefur hver hv. þingmaðurinn af öðrum úr stjórnarliðinu komið upp og sagst vona að við gætum átt heiðarlega og góða umræðu um þetta mál. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson virðist ekki hafa fengið minnisblað um það. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að hafa stjórn á þingfundi að því marki að menn nýti ekki fyrst og fremst tækifæri sitt hér í pontu til að dreifa óhróðri og lygum um aðra hv. alþingismenn. Slíkt er ekki til þess fallið að stuðla að góðri umræðu hér um Evrópumálin eða nokkuð annað. Ég beini þessu til hæstv. forseta. Ef það er einhver raunverulegur vilji fyrir því að hér fari fram hreinskiptin og heiðarleg umræða þá þarf að koma í veg fyrir (Forseti hringir.) að menn misnoti þennan ræðustól hér með þeim hætti sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson komst upp með áðan.