þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þetta er dálítið merkileg umræða. Hér var ég í ræðu minni að vísa í fréttir í erlendum fjölmiðlum sem eru raktar til heimilda vestanhafs og í Bretlandi og sagði að það væri fullt tilefni fyrir Miðflokkinn til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Ég tók það sérstaklega fram í ræðu minni að ég ætlaði ekki að leggja neitt mat á sannindi í þessu heldur væri það þeirra að gera hreint fyrir sínum dyrum og ég get bara endurtekið það. Það hefur raunar verið bannað í íslenskum lögum frá 6. júní 1978 að þiggja fé eða aðra hagsmuni frá erlendum aðilum og þess vegna er þetta mikilvægt mál, sérstaklega núna þegar við lifum í heimi þar sem erlendir aðilar eru að hafa áhrif á kosningar um allan heim. Ég er ekki að fullyrða neitt en það er eðlilegt að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessu.