þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það hefur lengi verið vitað að hv. þm. Dagur B. Eggertsson kynni ekki að skammast sín og við þekkjum mörg dæmi um það. En það er óviðunandi að hv. þingmaður skuli, eftir þær athugasemdir sem hér hafa komið fram, koma hér aftur og beita bragðinu sem upp á ensku er kallað: „Let them deny it“, látum þá neita því, um hluti sem menn, eins og í hans tilviki, mega fullvel vita að eru ósannir og hafa verið leiðréttir. Og hann lætur það ekki nægja heldur kemur hann aftur og gefur til kynna að fram hafi farið saknæmt athæfi ofan á allt hitt; og látum þá neita því. Þetta er óviðunandi, frú forseti, og ég ítreka fyrri athugasemd mína. Ég tel að framganga hv. þm. Dags B. Eggertssonar hér í dag kalli á athugun af hálfu hæstv. forseta og forsætisnefndar.