157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég hef ekki lagt það í vana minn að koma mikið upp í fundarstjórn forseta en ég sé mig knúinn til að gera það hér og nú. Mér ofbauð eiginlega orðræðan sem hér hefur farið fram í þessum þingsal og ég ætla að hvetja virðulegan forseta til að stíga hér inn. Það er eitt, virðulegur forseti, að koma hér fram og vera með dylgjur byggðar á einhverjum sögusögnum eða einhverju sem við lesum í fjölmiðlum, innlendum eða erlendum, eða bera það upp á þingmenn í ræðu um Evrópusambandið sem við höfum verið að kalla eftir, bæði í meiri hluta og minni hluta, að ná hér málefnalegri og góðri umræðu. En það keyrði eiginlega um þverbak, virðulegur forseti, þegar hv. þingmaður kom hingað upp og var í raun og veru að segja það í ræðustól Alþingis að hér væri um saknæma háttsemi að ræða af hv. þingmanni. (Forseti hringir.) Erum við virkilega komin á þennan stað í þessari umræðu? Ég hvet virðulegan forseta til að gera aðeins hlé og taka þetta mál til skoðunar (Forseti hringir.) vegna þess að þetta er komið út í algjöra vitleysu, virðulegur forseti.