157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:33]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það vill þannig til að hv. þingmaður hefur sennilega meiri reynslu heldur en flestir hér inni af utanríkisþjónustunni. Hann starfaði lengi í utanríkisþjónustunni, til fjölda ára, og hefur gríðarþekkingu á samskiptum Íslands við erlend ríki, sömuleiðis við Evrópusambandið. Hv. þingmaður kom svo sem aðeins inn á það í sinni ræðu sem snýr að þessum varanlegu undanþágum frá hinu og þessu sem hefur verið haldið hér fram, bæði af hæstv. utanríkisráðherra og fleirum. Við höfum aftur á móti séð fréttir frá Brussel og sömuleiðis var spiluð frétt á föstudaginn síðasta þegar hinn umræddi blaðamannafundur fór fram þar sem Heather Grabbe kom fram og sagði: Það eru engar varanlegar undanþágur. (Forseti hringir.) Getur hv. þingmaður tekið undir með mér hvað þetta varðar?