þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. Ég get tekið undir og verið sammála hv. þingmanni þegar hann spyr mig hvort ég geti tekið undir að það séu engar varanlegar undanþágur frá regluverki ESB. Það er þannig. Og hvers vegna ættu ESB-ríkin 27, og þá er ég að tala um ríkin sjálf, að veita slíkar undanþágur þegar þau hafa ekki fengið þær sjálf? Hvers vegna ættu þau að veita þær?
Svo varðandi annað. Af því að það er búið að tala mikið um að eiga sæti við borðið þá ætla ég bara að minna á það — já, ég var í utanríkisþjónustunni í 25 ár þannig að ég hef talsvert mikla reynslu. Til að mynda var ég fimm ár á pósti í Genf. Þar eru fjölmargar alþjóðastofnanir. Ég ætla að nefna hérna lítið dæmi: Á fundum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, sem er í Genf, eiga ESB-ríkin sæti við borðið en þau taka aldrei til máls. Og vegna hvers? Það kemur talsmaður (Forseti hringir.) frá Brussel sem mælir fyrir hönd þeirra. Þau eiga sæti við borðið en taka aldrei til máls.