157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:37]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum greinilega ansi sammála, ég og hv. þingmaður. Mér finnst þessi spurning mjög villandi og hún er í raun og veru röng. Í raun og veru ætti að spyrja þjóðina, ef það er verið að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu: Viltu ganga í ESB? En spurningin er: Viltu halda áfram að kíkja í pakkann? Viltu halda áfram að kíkja í pakkann sem enginn veit hvað er á bak við? Það er sagt að það séu einhver samningsmarkmið í greinargerðinni en þetta eru engin samningsmarkmið. Ég skil varla hvað hér er á ferðinni, hvað þá þjóðin. Ég hef þó starfað í þessum geira. Hvernig á hinn almenni kjósandi, sem hefur hvorki unnið við utanríkisþjónustu né utanríkismál, að geta myndað sér skoðun (Forseti hringir.) á grundvelli nokkurra lína? Það er ekkert hérna. (Forseti hringir.) Þannig að ef það á að spyrja að einhverju þá á að spyrja: Á að ganga í ESB?