þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skil heldur ekki hvers vegna þessi tillaga er lögð fram á þessum tímapunkti og ég skil í raun og veru ekkert hvers vegna er verið að leggja hana fram vegna þess að við höfum ekkert að gera í þennan klúbb að mínu viti. Þingmaðurinn spyr hvort ráðherraskipan hafi einhver áhrif á framhaldið. Augljóslega held ég að ráðherraskipanin hafi talsverð áhrif, ég meina, það er augljóst núna að Flokkur fólksins er búinn að fá eitthvað í stjórnarsáttmálanum, Samfylking kannski eitthvað, en nú er Viðreisn greinilega að pína út aðgerðir í samvinnu við ríkisstjórnina varðandi þetta þjóðaratkvæði sem er eina (Forseti hringir.) mál Viðreisnar og það mál sem þessi (Forseti hringir.) flokkur er stofnaður um, þ.e. aðild að Evrópusambandinu.