157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:41]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ætla kannski að forma spurningu mína aðeins betur að því leyti til að nú er algerlega augljóst í mínum huga, ef við segjum að það verði sagt já við því að halda áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu, þá kemur væntanlega til kasta ráðherranna að vinna með það í sínum ráðuneytum. Þá eru auðvitað þau atriði sem þar undir heyra og ég vil nefna í því sambandi að Viðreisn heldur á atvinnuvegaráðuneytinu þar sem eru undir auðlindir er varða sjávarútveginn. Síðan eru landbúnaðarkaflinn og orkumálin, sem eru jafnframt auðlindamál, á hendi Samfylkingarinnar. Ætli það sé tilviljun að þessi röðun hafi orðið? Það er alveg augljóst í mínum huga að Flokkur fólksins ætlar að skila auðu það sem eftir er af þessu kjörtímabili og ætlar í rauninni að ganga gegn öllum sínum yfirlýsingum um að það eigi ekki að taka þátt í Evrópusamstarfinu.