157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir fyrra andsvar. Ég er þeirrar skoðunar að mér finnst byrjað á röngum enda. Ef það er verið að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu er varðar ESB, þá finnst mér að það eigi bara að spyrja þjóðina: Viltu ganga í ESB? Ég reyndar tók ekki þingsályktunartillöguna með mér upp í pontu. Mér finnst hún þunn, óskýr og mér er ómögulegt að skilja hvernig fólk á með þennan þunna pappír í höndunum, með engin samningsmarkmið, að geta greitt atkvæði um hvort það vilji halda þessum aðlögunarviðræðum áfram eða ekki. Ég bara skil ekki hvernig fólk á að geta greitt atkvæði á þessum grunni. Fyrir utan að það er mikill kostnaður að fara út í svona þjóðaratkvæðagreiðslu. Af hverju er ekki bara spurt: Viltu ganga í ESB? Þá er það bara úr sögunni eða ekki.