157. löggjafarþing — 81. fundur, 10. mars 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég þakka líka fyrir þessa umræðu sem hefur verið hér mestan part málefnaleg. Ég heyrði, held ég, í ræðunni að hún hafi talað um að klúbburinn í Brussel ásælist auðlindirnar okkar. Mig langar að spyrja: Veit hv. þingmaður um einhver dæmi þess Evrópusambandið hafi eignast einhverjar auðlindir eða tekið einhverjar auðlindir frá þjóðum?