157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:07]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans fyrra svar og mig langar að koma inn á annað. Í fréttum núna í dag, á visir.is, kom Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fram — af því að hér hefur oft verið talað um það að íslenska krónan sé aðalvandamálið. Eins og kemur fram hjá aðalhagfræðingi Íslandsbanka hefur íslenska krónan ekki áhrif á verðbólguna á Íslandi. Síðastliðin sex ár hefur íslenska krónan sveiflast minna heldur en evra, dollari og pund. Finnst ekki hv. þingmanni stundum, hvað skal segja, eins og ekki sé verið að fara alltaf rétt með þegar því er haldið fram og krónan gerð að einhverjum blóraböggli þegar tölurnar tala í raun sínu máli? Við sjáum flöktið á öðrum gjaldmiðlum og það kemur fram að verðbólgan er ekki hér út af krónunni heldur er hún heimatilbúinn vandi ríkisstjórnarinnar.