þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Mig langar að vitna í texta frá ESB, með leyfi forseta:
„Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“
Þetta er efni frá Evrópusambandinu. Þetta er texti frá Evrópusambandinu þannig að mig langar að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson: Ef Evrópusambandssinnar vilja meina að Evrópusambandið sé að ljúga þessu og öðru eru það þá meðmæli með því að ganga í sambandið ef ekkert er að marka það sem þaðan kemur? Hvað finnst hv. þingmanni um það?