þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langaði líka í raun og veru að fara aðeins annað í næstu spurningu því að eins og ég segi — mig langar reyndar að fá hv. þingmann til að hafa eitthvað um það að segja hversu ánægðir finnskir bændur eru innan ESB og þeirra undanþágu eða þeirra breytinga á samþykktum sem þau fengu við inngöngu sína í ESB á sínum tíma vegna sérstöðu. Þar er gríðarlegur stuðningur við ESB meðal þeirrar stéttar, þannig að við getum sagt að þar hafi fundist leiðir til undanþágu. En af því að hv. þingmaður talar um lýðræðið líka, að við eigum að virða lýðræðið, finnst þingmanninum ekki að við skuldum næstu kynslóð, unga fólkinu okkar, börnunum okkar það að við leyfum þeim að kjósa um þetta? Þetta mál snýst um framtíðina, ekki fortíðina.