157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:19]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa spurningu. Nú vill þannig til að dagsetning á þjóðaratkvæðagreiðslunni er núna næstkomandi haust. Það er þá sú þjóð og þeir einstaklingar sem hafa kosningarrétt sem fá að kjósa um það hvort menn vilji fara í aðildarviðræður eða ekki. Hvort börnin okkar eða afkomendur eftir 20 eða 30 ár, eða hvenær sem það verður — við höfum ekkert um það að segja í dag hvað þau ætla að gera eftir 20–30 ár. Af því að hv. þingmaður spurði út í finnska bændur. Vissulega var það þannig að þegar Finnland gengur þarna inn er farið í heimskautastuðning, þ.e. þeir bændur sem eru norðan við ákveðna línu fengu öfluga og góða styrki en það var tímabundið. Þar af leiðandi kemur að því innan sex eða sjö ára, ef ég man rétt, (Forseti hringir.) að þessar horfur breytast hvað það varðar. (Forseti hringir.) Það er ekki allt fengið með því í byrjun að fara þessa leið.