157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:23]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanni fyrir hans svör. Ég vil hins vegar spyrja þingmanninn einnig, vegna þess að við erum hér að tala um samningsmarkmið og ég veit að hv. þingmanni er það kært, um landbúnaðinn á Íslandi. Hér hefur um áraraðir og aldir verið gætt að því að verja bústofna, að flytja ekki inn dýrastofna, en þessir kaflar regluverksins sem verða teknir upp verði af þessari aðild Íslands munu opna þetta allt upp á gátt. Mig langar að fá skoðun hv. þingmanns á því hvort þessir þættir þurfi ekki að vera skilyrði af hálfu Íslands, þ.e. að við tökum ekki upp þetta regluverk verði af aðild Íslands að Evrópusambandinu.