157. löggjafarþing — 81. fundur, 10. mars 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið. Með fullri virðingu fyrir öllu því sem hv. þingmaður hefur fram að færa þá vil ég bara fá samninginn, ég bara treysti ekki alltaf öllum þingmönnum og ég held að þjóðin treysti okkur ekki eins og kemur glögglega fram þegar spurt er um traust á þessari stofnun, Alþingi. Það er að mælast um 30%. Leyfum þjóðinni að sjá fullgerðan samning svo hún geti tekið þessa ákvörðun fyrir sjálfa sig. Það er það sem ég er að segja.