157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:39]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Þingmanninum verður tíðrætt um, eins og flestir úr stjórnarmeirihlutanum sem hafa komið hér upp síðustu daga, að okkur beri að treysta þjóðinni og að þegar komin sé niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslu, um þær spurningar sem þarna eru lagðar fram, sé hægt að ganga lengra. Hvað finnst þingmanninum um þá gagnrýni eða um þau viðbrögð sem höfð eru uppi um það að með því að fara af stað í þetta, ef það verður samþykkt að halda viðræðunum áfram, þá sé verið að stíga mjög stórt skref og það sé í raun verið að undirbúa aðildarviðræður og aðlögunarviðræður, ef svo má segja. Hefði ekki verið hreinlegra að bæta bara við spurninguna hvort þjóðin vilji halda áfram viðræðum um aðild Íslands að ESB með það að markmiði að ganga þar inn? Hefði það ekki verið hreinlegra?