þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Þarna getum við verið ósammála um hvort þetta sé rétta spurningin; hvort það ætti ekki, ef það er verið að fara út í þjóðaratkvæðagreiðslu, að gera grein fyrir þeim skilyrðum sem ríkisstjórnin ætlar að setja fyrir framhaldið.
Mig langar að fá fram viðhorf hv. þingmanns í seinna andsvari, af því að mönnum verður tíðrætt um, eins og ég sagði hér áðan, að treysta þjóðinni. Í aðdraganda síðustu kosninga og eftir kosningar sagði hæstv. forsætisráðherra ítrekað að þetta væri ekki brýnasta verkefnið hér á landi. Hvað finnst hv. þingmanni um þá breytingu á afstöðu sem hefur orðið með því að þetta mál er nú lagt fram á þinginu? Er hægt að treysta slíkum málflutningi sem kemur úr ranni hæstv. ráðherra? Það er sífellt talað um að treysta þjóðinni en getum við treyst ráðherrum sem fullyrða eitt en fara skömmu síðar á einhvern allt annan stað?