þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held reyndar að við höfum kannski ekki séð lausnina í svarinu varðandi — er þetta tíminn?
(Forseti (BergÓ): Þetta er svona.)
Ég er ekki viss um að þetta gangi upp eins og hv. þingmaður nefndi. Hér var líka rætt um húsnæðiskostnað ungs fólks eða húsnæði hjá ungu fólki. Af því að ég veit að hv. þingmaður býr nú í Ölfusi langar mig til að benda á að það er kannski ofmælt að það sé húsnæðisvandi hér á Íslandi varðandi unga fólkið. Nú vil ég t.d. benda viðkomandi þingmanni á það að hann býr í sveitarfélagi þar sem hefur orðið 55% fjölgun íbúa núna á örfáum árum og meðalaldur íbúa er 38 ár. Getum við ekki bara sagt það í rauninni að það sé ákveðinn vandi varðandi húsnæði sem sé mjög afmarkaður á Íslandi og bundinn við höfuðborgarsvæðið? Kannski er það bara þannig að hv. þingmaður gæti leitað orsakanna í einhverju öðru en því að hér sé eitthvað erfitt að byggja húsnæði eða koma upp húsnæði fyrir fólk? (Forseti hringir.) Snýst þetta í rauninni bara um það að við höfum skynsamlega stefnu í því að hér sé hægt að byggja, eins og t.d. í Reykjavík þar (Forseti hringir.) sem flokkur hv. þingmanns hefur verið við völd mjög lengi?