157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:48]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég bý sannarlega í Ölfusi en húsið sem ég keypti þar fyrir átta árum síðan á 36 milljónir er nú metið á 80 milljónir. Það eina sem ég hef gert er að mála að utan. Þetta finnst mér mjög sérkennilegt. Þetta segir manni líka að það er líka orðið erfitt að kaupa húsnæði úti á landi. Mér finnst þetta mjög skrýtinn húsnæðismarkaður. Hvort þetta megi rekja til krónunnar okkar og verðbólgunnar eða einhvers konar skrýtinnar samkeppni og leigumarkaðs sem er alveg í ruglinu eða hvað, ég er ekki alveg með það á hreinu. En það er bara mjög erfitt fyrir ungt fólk að komast inn á húsnæðismarkaðinn í dag. Það er líka bara grátlegt að við séum að borga húsnæðið okkar þrisvar sinnum. Maður gæti gert ýmislegt fyrir það, stofnað fyrirtæki eða eitthvað. Ha, Óli? [Hlátur í þingsal.](ÓA: Góður.) Er það ekki?