157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:49]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir hennar ræðu hér áðan. Hún fór mikinn í ræðunni og talaði um óreiðu og svoleiðis. Hún vill fá samning og hún vill kíkja í pakkann. Hún er ekki í ríkisstjórn en hennar flokkur á aðild að þessari ríkisstjórn. Ég er því með tillögu: Myndi hv. þingmaður taka undir þá tillögu að ríkisstjórnin myndi bara senda bréf til Brussel, það er nú alvanalegt að bréf séu send til Brussel, þar sem spurt yrði hvort hægt sé að fá varanlegar undanþágur frá regluverki ESB og að svörin myndu bara liggja fyrir fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna ef hún færi fram 29. ágúst? Tekur þingmaðurinn undir það að það gæti kannski verið æskilegt að ríkisstjórnin myndi hlutast til um að sent yrði bréf þar sem þessarar spurningar yrði spurt og svarið myndi liggja fyrir fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna?