þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir þessar seinni spurningar og vangaveltur. Ég ætla bara að byrja á því sem hv. þingmaður endaði á og taka undir það með hv. þingmanni að mér þykir tímasetningin ekki heppileg, hvorki gagnvart almenningi né gagnvart eðlilegu pólitísku starfi, hvort heldur sem er á vettvangi Alþingis eða á vettvangi sveitarstjórnarmálanna. Það hefur í gegnum tíðina verið vilji í þinginu, óháð því hvaða ríkisstjórnir hafa setið, til að gefa sveitarstjórnarstiginu talsvert mikið andrými í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og láta ekki allt hverfast um stærri mál á þessum samfélagslega grunni; ég tala nú ekki um þegar við erum komin með í hendurnar mál sem eru einhver þau stærstu sem við fáumst við, sem eru mál er lúta að fullveldi þjóðar til að mynda. Það er einhvers konar yfirkeyrsla í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og ég hygg að beita þurfi talsverðri lagni til að reyna að gefa sveitarstjórnarstiginu færi á því í aðdraganda kosninga að láta umræðuna hverfast um málefni á vettvangi sveitarfélaganna. Það væri hins vegar fulldjúpt í árinni tekið að segja að það komi mér á óvart hvernig þetta er gert, ekki síst ef við horfum aðeins yfir söguna. Við vorum með forsætisráðherra í aðdraganda kosninga sem ætlaði að hækka veiðigjöld í þrepum á tíu ára tímabili, ætlaði ekki að hækka skatta á venjulegt fólk, en svo kom kílómetraskatturinn og svo komu vörugjöldin. Ég er því, hv. þingmaður, satt best að segja hættur að verða hissa en maður getur enn þá orðið fyrir vonbrigðum.