þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni fyrir hans mjög svo góðu yfirferð hérna og ég verð að segja það, virðulegur forseti, að umræðurnar hér heilt yfir hafa verið mjög góðar og efnismiklar og mörgum spurningum velt upp og ekki ástæða til annars enda málið stórt og mikilvægt fyrir íslenska þjóð. En það er alveg greinilegt að núna er tímalínan svolítið að raðast upp og við sjáum hvernig hún er að púslast saman. Við þingmenn höfum svo sem nefnt það hér í mörgum ræðum að við sjáum að ákveðin mál hafa verið keyrð í gegn í offorsi, í gegnum þingið, og hér hafa verið haldnar ræður um fundarstjórn forseta og annað af því að þetta eru mjög óvönduð vinnubrögð. Ég nefni grásleppuna og ekki síst launavísitöluna. Þá áttar maður sig á því að hér er verið að klára ákveðin mál fyrir Flokk fólksins til þess að það fáist meiri hluti fyrir því í ríkisstjórninni og vilyrði fyrir því að koma með þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og Flokkur fólksins leggist á sveif með henni. Ég er alveg viss um það að Flokkur fólksins hefði líklega ekki samþykkt að þessi þingsályktunartillaga yrði lögð fram fyrr en það væri búið að keyra þeirra helstu baráttumál í gegn, enda gengu stjórnarþingmenn, sérstaklega Viðreisnar, með veggjum og vildu helst ekki kannast við þessi mál. En svona gerast nú kaupin á eyrinni eða réttara sagt, virðulegur forseti, hrossakaupin á eyrinni hjá hæstv. ríkisstjórn.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki í rauninni sammála mér um að við sjáum núna þessa tímalínu og vil kannski líka spyrja um þessi hrossakaup en sérstaklega það að koma með þetta núna rétt ofan í sveitarstjórnarkosningar, að þetta fari að lita hér pólitíska umræðu rétt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Í öðru lagi er það tímasetningin (Forseti hringir.) 29. ágúst þegar þjóðin er rétt að koma úr sumarfríi.