157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:36]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans spurningu. Ég tek undir það algerlega að heilt yfir hefur umræðan hér verið málefnaleg þó að mér þyki það stórundarlegt hvað þessi tillaga sem hér hefur verið lögð fram er illa unnin og hvað er lítið búið að vinna í undirbúningi að þessu máli. Það er bara stórundarlegt. En hv. þingmaður spurði mig út í tímalínu þessa máls. Já, vissulega er það þannig að þegar litið er á dagsetningarnar sem hér eru að raðast upp þá er engu líkara en að stjórnvöld í þessu landi vilji forðast málefnalega umræðu eða yfirleitt umfjöllun um málið. Af hverju segi ég það? Það er vegna þess að hér er lögð fram tillaga núna og það mun taka þingheim örugglega næsta mánuðinn að vinna þetta, alveg að lágmarki. Þá erum við komin inn í sveitarstjórnarkosningar. Og talandi um lýðræðið; að velja þessa dagsetningu, velja þetta ferli núna, trufla sveitarstjórnarkosningarnar í landinu — þetta truflar þær. Þó að fólk geti gert greinarmun á þessu er hætta á því að það verði þetta mál sem heltaki umræðuna í samfélaginu. Það er verið að kljúfa þjóðina niður í tvær fylkingar. Það er það sem ríkisstjórnin er að gera. Ef þessi dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar stenst, 29. ágúst, þá er merkilegt að þetta er að falla á sama tíma og forsendur kjarasamninga í þessu landi kunna að vera að bresta. Því segi ég að það er vegna þess að verðbólgan í þessu landi er bara að hækka. Það liggja nú þegar fyrir ákveðnar forsendur sem segja okkur að hún er bara að fara að hækka. Þannig að já, dagsetningarnar í þessu máli eru afar óheppilegur, hv. þingmaður.