157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:42]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er búinn að vera að velta því fyrir mér hvaða efnistök ættu að vera í tíu mínútna ræðu til viðbótar við það sem fram hefur komið, en hér kom fram virkilega áhugaverð ræða og ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hana. Sjálfstæðisbaráttan fæddist nefnilega ekki af sjálfu sér og það að tryggja síðan sjálfstæðið í sessi, að verða þjóð meðal þjóða, kom heldur ekki af sjálfu sér og er nærtækast að nefna þar þorskastríðin. Úr örbirgð í velmegun á grundvelli þess sem við höfðum og réðum yfir.

Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í þá stöðu sem við erum í ef það verður að veruleika að við verðum aðildarþjóð að Evrópusambandinu. Þeim stoðum sem eru undir efnahagslífinu á Íslandi hefur vissulega fjölgað á undanförnum árum og það er vel. Stóriðjan kom inn á sjöunda áratugnum. Svo höfum við fengið hugbúnaðinn og við erum með ferðaþjónustuna og þetta hefur dreifst. Eggjunum hefur fjölgað í körfunni, sem er gríðarlega mikilvægt. En það hefur ekki breytt neinu um það að sjávarútvegurinn er áfram grunnstoð í íslensku samfélagi og hann er nátengdur getu okkar til að geta verið þjóð meðal þjóða. Fjárfesting erlendra aðila í sjávarútvegi er óumflýjanleg ef við verðum aðilar að Evrópusambandinu með afleiðingum sem við þekkjum ekki alveg í dag en segir okkur samt að þau fyrirtæki, evrópsk fyrirtæki sem munu fjárfesta hér og jafnvel eignast íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki munu reyna að reka það með sem hagkvæmustum hætti. Það er erfitt að reka sjávarútveg hagkvæmt á Íslandi í því launaumhverfi sem við erum í og því getum við augljóslega misst úr landi einhverjar stoðir í íslenskum sjávarútvegi, eins og vinnsluna. Hvað þýðir það fyrir sjálfstæði okkar að gelda til að mynda slíka stoð?