157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:44]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Hann vék mjög ágætlega að því framfara- og hagvaxtarskeiði sem hér hefur ríkt svo gott sem allan þann tíma sem lýðveldið hefur verið við lýði, frá því að síðasta þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í þessu landi á vegum Alþingis Íslendinga. Allt þetta ferli er hálfmetnaðarlaust, hv. þingmaður. Allt þetta ferli lýtur að því að við eigum að sækja í meðalmennsku en ekki í metnað. Allt þetta ferli lýtur að því að fara inn í ríkjasamband þar sem hagvöxtur er á allt öðrum stað í langflestum aðildarríkjum heldur en ríkir hér. Okkur langar sem sagt núna að hætta að vera efst í bekknum og fara neðar í bekkinn. Það má segja að það sé verið að fara að spyrja að því.

Hv. þingmaður vék máli sínu sérstaklega að sjávarútveginum og ég tel það í grunninn augljóst fyrir hvern skynsaman mann sem það skoðar að það er og verður forsenda þess fyrir Ísland að gerast aðili að Evrópusambandinu að í boði verði varanlegar — varanlegar nota bene — undanþágur, ekki sérlausnir heldur varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveginn. Vegna þess að sameiginlega sjávarútvegsstefnan þýðir einfaldlega að úthlutun á veiðiheimildum hér verður ekki lengur að öllu leyti í okkar höndum og við munum ekki, vegna einmitt fjárfestingarreglnanna sem hv. þingmaður vék að, hafa forræði á þessari auðlind sem myndar grundvallaratvinnuveg þessarar þjóðar.