þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ólafssyni fyrir hans ágætu spurningar og hugleiðingarnar með þeim. Af því að þingmaðurinn nefndi verðbólgu og vexti sérstaklega í samhengi við þessa þingsályktunartillögu þykir manni augljóst að þessi ríkisstjórn var kosin til þeirra verka að berja niður verðbólguna, koma vöxtunum niður og snúa sér að aðhaldi í ríkisrekstri en ekki var þjóðin að kjósa í síðustu kosningum um það hvort við ættum að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er rétt sem hv. þingmaður hafði hér á orði, að ef við göngum þarna inn að lokum þá stöndum við frammi fyrir því þegar fram í sækir að við erum að fara að taka út verðbólgu, þ.e. okkar efnahagslægðir, (Forseti hringir.) í gegnum atvinnuleysi en ekki í gegnum gengið á okkar krónu. Það er bara þannig.