157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:59]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Herra forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands og ESB, Evrópusambandsins. Framlagning þingsályktunartillögunnar er að mínu mati mikið fagnaðarefni en ljóst er að margir eru andvígir því að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Það vekur mér nokkra furðu að svo skiptar skoðanir séu á því að þjóðin fái að ákveða stefnuna í þessu máli. Ekki fer á milli mála að skoðanir landsmanna til aðildar að Evrópusambandinu eru skiptar.

Herra forseti. Já, það fer ekki á milli mála að það er ekki eining meðal okkar um aðild en það ætti að vera eining á meðal okkar stjórnmálamanna um að þjóðin ákveði þetta og við tökum leiðsögn hennar og högum okkur í samræmi við leiðsögnina. Þessa einingu er þó ekki að finna og má þess glöggt sjá merki í umræðunni hér í dag og í gær. Það er oft sagt um Evrópusambandsmálin að þau kljúfi þjóðina. Það er rétt. Sennilega eru þeir Íslendingar sem eru fylgjandi aðild að sambandinu svipað margir og þeir sem eru því andvígir. Það klýfur ekki þjóðina að hún ákveði að fara í viðræður við Evrópusambandið eða ákveði að gera það ekki, ekkert frekar en að það kljúfi þjóðina að gera ekki neitt.

Fyrir þann sem hér stendur er það langþráður draumur sem nú er í augsýn að fá að kjósa um áframhald viðræðna. Ég hef lengi verið hallur undir aðild að Evrópusambandinu, einkum vegna þess að ég tel að við Íslendingar værum betur settir með stærri gjaldmiðil og öflugri, það sé betra að vera hluti af tollabandalagi, það sé nauðsynlegt fyrir okkur, verandi hluti af EES-svæðinu, að eiga sæti við borðið þegar ákvarðanir varðandi okkur eru teknar og gæta þannig hagsmuna. Að eiga sæti við borðið þýðir að við ættum einn framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn sambandsins, sæti í ráðherraráðinu og fulltrúa á Evrópuþinginu eins og öll hin aðildarlöndin. Þá hefur núverandi ástand heimsmálanna er lýtur að varnar- og öryggismálum gert það að verkum að ég hef alvarlega velt fyrir mér hvort það að tilheyra ríkjabandalagi sé ekki einmitt það sem við þurfum þó að ljóst sé að viðkomandi bandalag sé ekki í grunninn varnarbandalag heldur efnahagsbandalag. Það er okkur mikilvægt að við hugum að öryggi lands og þjóðar í sinni víðustu mynd.

Frú forseti. Það urðu mér því mikil vonbrigði eftir alþingiskosningarnar 2013 þegar ríkisstjórnin sem þá tók við völdum ákvað að kosningar um áframhaldandi viðræður yrðu ekki haldnar þrátt fyrir loforð þar að lútandi í aðdraganda kosninganna með þeim rökum að það væri ekki pólitískt framkvæmanlegt. Síðan hefur þjóðin verið klofin, frú forseti. Við skulum ekki gleyma því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hófust samkvæmt þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi hinn 16. júlí 2009. Þær voru hins vegar settar á ís með bréfi utanríkisráðherra og forsætisráðherra til Evrópusambandsins árið 2013 án þess að Alþingi hefði samþykkt þá ráðagerð. Sú ákvörðun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var ekki lýðræðisleg, sem er annað en það ferli sem við erum nú að hefja með þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það ferli er lýðræðislegt og það verður hafið yfir vafa hver vilji þjóðarinnar er hvað það varðar að hefja viðræður. Slíka vitneskju hafði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ekki en ákvað engu að síður að hætta viðræðunum.

Þrátt fyrir að ég segist vera hallur undir aðild að Evrópusambandinu þá er það heilagt fyrir mér að þjóðin segi sitt álit á þeim samningi sem verður, eftir atvikum, afrakstur aðildarviðræðna. Það verður ekki ákvörðun stjórnmálamanna að ákveða aðild, það verður ákvörðun þjóðarinnar. En það verður hlutverk stjórnmála- og embættismanna að gera góðan samning sem lagður verður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Það segir sig sjálft að vonir mínar standa til þess að við fáum góðan samning sem verði samþykktur en það er alveg ljóst að þjóðin mun ekki samþykkja nema góðan samning og það sama á við um mig.

Frú forseti. Það er mikilvægt að muna að í þessum kosningum verður aðeins kosið um hvort halda eigi áfram viðræðum, ekkert annað. Ákveði þjóðin að halda áfram viðræðum þá verður það gert og í fyllingu tímans lagður fyrir þjóðina samningur sem hún tekur þá efnislega afstöðu til. Fyrr verður ekkert ákveðið um aðild okkar að Evrópusambandinu. Um þetta tökumst við á í dag og munum gera áfram.

Því er haldið fram, frú forseti, að verið sé að blekkja þjóðina með því að óska eftir leiðsögn hennar um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu, ekki sé um neitt að semja. Þetta er sérstakur málflutningur og rangur, enda blasir það við þeim sem vilja sjá að ferli þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður eða ekki mun ekki skila öðru en því hvernig skuli haldið áfram hvað varðar aðildarviðræður. Ekkert í ferlinu við þessar kosningar mun leiða til aðildar að Evrópusambandinu. Ekkert. Í þá vegferð verður ekki farið nema þjóðin ákveði það. Hver er þá eiginlega blekkingin, frú forseti?

Það fer ekki hjá því að frá því á föstudag hafi maður varla hitt fólk svo ekki hafi fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla borið á góma. Ég hef verið spurður hvort aðlögun að efni kaflanna 35 sem ræddir verða í aðildarviðræðunum verði ekki fyrr en eftir seinni atkvæðagreiðsluna. Það er auðvitað svo að í viðræðunum verður til skoðunar hvernig við aðlögum okkur að reglum Evrópusambandsins en það verður hins vegar ekki fyrr en eftir seinni atkvæðagreiðsluna sem efni samningsins verður hluti af regluverki Íslands að því gefnu að samningurinn verði samþykktur og að því gefnu að viðhlítandi breytingar hafi verið gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins.

Þá hefur mér verið sagt að ég og allir sem eru á svipaðri skoðun og ég hvað varðar þessa atkvæðagreiðslu vitum vel að það standist ekki að hafa þennan háttinn á, þ.e. að spyrja fyrst þjóðina og fara svo í samningaviðræður vegna þess að það sé ekkert til að semja um. Ég tel það augljóst að komi til þess að þjóðin vilji fara í aðildarviðræður þá verði til skoðunar hvað sé í boði, hvaða aðlögun myndi þýða fyrir okkur og hvar kæmi til álita að láta reyna á samning. Það hefur líka verið sagt við mig að það sé óskiljanlegt að það þurfi að fara í þessa atkvæðagreiðslu, þ.e. þá sem við ræðum hér og nú. Hingað til hafi verið gerðir alls kyns samningar sem ekki þurfti að kjósa um fyrir fram hvort gera ætti og ekki heldur þegar þeir voru fullgiltir. Þetta gildir um aðildina að NATO og EES svo nærtæk dæmi séu tekin. Við þessu segi ég að það sé grundvallaratriði í mínum huga að þjóðin ráði því, þ.e. meiri hluti hennar, hvort við förum í aðildarviðræður og hún taki svo eftir atvikum afstöðu til samnings þegar hann liggur fyrir. Það voru mikil mistök 2009 að hefja aðildarviðræður án leiðsagnar frá þjóðinni. Þau mistök verða ekki endurtekin. Þess vegna er nauðsynlegt að það verði kosið í sumar.

Ég hef látið mig varða öryggismál hér á Alþingi og ekki síst bent á, þegar ég hef fengið tækifæri til, málefni lögreglunnar í því efni. Ísland á í mjög góðu sambandi við löggæslustofnanir Evrópusambandsins og hefur átt þar tengslafulltrúa frá 2007. Þá hefur Ísland átt tengslasaksóknara hjá Eurojust frá 2024 en sú stofnun er eins konar systurstofnun Europol og fer með málefni sem heyra til ákæruvalds aðildarlandanna. Þátttaka okkar hjá þessum stofnunum er byggð á samningi og við höfum litla sem enga aðkomu að stefnu þeirra, hið sama og gildir um aðra aðkomu okkar að ákvörðunum Evrópusambandsins sem snerta okkur. Þá hafa verið samþykktar leiðir í samskiptum aðildarlanda Evrópusambandsins sem eftir atvikum stytta boðleiðir milli landanna og gera samskiptin greiðari og einfaldari. Að sumum þessara úrræða höfum við fengið aðild með samningum en öðrum ekki en full aðild að Evrópusambandinu mun auðvelda löggæsluyfirvöldum á Íslandi baráttuna við skipulagða brotastarfsemi og brotahópa, m.a. með notkun úrræðanna sem ég nefndi hér að framan.

Að lokum, frú forseti, vil ég nefna stuttlega kröfu sumra um að þau sem tala fyrir atkvæðagreiðslu um hvort viðræðum við Evrópusambandið verði fram haldið og eru eftir atvikum fylgjandi því þurfi að skilgreina samningsmarkmið áður en kosið verður um áframhaldið. Mér finnst það vera hálfgerð hringhenda. Ef þjóðin kemst að þeirri niðurstöðu að viðræðum skuli fram haldið þá munum við skilgreina endanleg samningsmarkmið. Að lokum verður svo samningurinn borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Það verður ekki fyrr en þá sem ákveðið verður hvort samningsmarkmið okkar hafi verið viðeigandi og þeim hafi verið náð og þá eftir atvikum hvort samningurinn verði samþykktur.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.