þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans ræðu. Það var athyglisvert að heyra það frá jafn vönduðum manni og hv. þm. Grímur Grímsson er að hann telji það í grunninn óþarfa að upplýsa Jón og Gunnu í þessu landi frekar áður en þessi atkvæðagreiðsla fer fram. En grunnspurningin sem mig langaði að spyrja hv. þingmann að er: Hann vék að því í sinni ræðu að ekkert við þessar kosningar muni leiða til aðildar að Evrópusambandinu en á bls. 3 í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu kemur alveg fram að eftir að búið er að ná samningi, komumst við á það stig, verður efnt til ríkjaráðstefnu. Það verður undirritaður samningur. Evrópuþingi ber að samþykkja aðildina og síðan fáum við að kjósa, íslensk þjóð, um þetta mál. Telur hv. þingmaður að hér verði enginn þrýstingur, utanaðkomandi þrýstingur, við svona aðstæður þegar kemur að seinni atkvæðagreiðslunni?