þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er sannast sagna furðulegt hvernig hv. þingmenn meiri hlutans og hæstv. ráðherrar nálgast þetta mál fyrst og fremst með því að þykjast ekkert skilja, þykist ekki vita hvað felst í Evrópusambandsaðild eða hvernig þetta gengur allt fyrir sig og þess vegna eigi bara að biðja þjóðina að svara einhverju. En svara hverju? Þeirri spurningu hefur nefnilega ekki verið svarað. Svar við því hvort menn vilji áframhaldandi aðildarviðræður. Gott og vel. En hvað þýðir það? Vegna þess að hv. þingmönnum meiri hlutans hættir til að gera sér upp vanþekkingu í málinu ætla ég bara að spyrja einnar afmarkaðrar spurningar varðandi þetta: Veit hv. þingmaður að ef samþykkt verður að fara í aðildarviðræður þá ber Íslandi sem umsóknarríki strax að byrja að aðlaga sig að Evrópusambandinu, ekki bara að útskýra hvað það ætli að gera heldur strax að byrja að aðlaga sig með lagabreytingum, með ráðningu embættismanna og með nýjum stofnunum. Veit hv. þingmaður um þetta?