þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Við erum búin að vera að ræða eitt stærsta mál sem er að koma inn í þennan sal núna, líklega á þessu kjörtímabili, risastórt mál sem, eins og fram hefur komið, er að kljúfa þjóðina í tvennt. En af hverju er þetta mál að koma hér inn rétt ofan í sveitarstjórnarkosningar þar sem kjósa á fljótlega eftir að sumarfríum landsmanna lýkur? Jú, af því að hér er á ferðinni uppgefin ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem er búin að missa tökin á verðbólgunni, á því að lækka vexti, á hækkandi atvinnuleysi, og þá er gott að reyna að beina kastljósinu og beina umræðunni á önnur mið og fá þingmenn til að tala um eitthvað annað en efnahagsástandið og fá þjóðina til að reyna að tala um eitthvað annað í heitu pottunum og á kaffistofunum en síðustu skilaboð frá Skattinum varðandi kílómetragjald. Það er reyndar gaman að sjá að Viðreisn virðist hafa vaknað til lífsins af því nú er komið hér inn í salinn eina mál Viðreisnar fyrir utan jafnlaunavottunina. Loksins hafa Viðreisnarmenn vaknað til lífsins, sem hafa ekki komið í umræður um risastór efnahagsleg mál eins og t.d. að setja fimmtung af ríkisútgjöldum á sjálfstýringu. Þá hurfu þeir úr salnum „med det samme“.
Það er mikið af rangfærslum í gangi og mig langar að nefna nokkrar — eða rangfærslum, ég myndi segja villandi málflutningi. Hér er mikið talað um samstöðu Evrópuríkjanna. Ég vil bara minna á það hvernig þetta var í Covid. Hvernig var samstaða Evrópuríkjanna í Covid? Við munum öll fréttirnar þegar þjóðir héldu að sér að deila með sér súrefnisvélunum og bóluefnunum og annað. Þá var bara hver og einn fyrir sig. Því er oft haldið fram að krónan sé vandamálið. Jón Bjarki Bentsson segir á Vísi í dag að síðustu sex árin hafi íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir gjaldmiðlar, þar á meðal dollari, evra og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur hefur hún sinnt hlutverki sínu vel sem fljótandi gjaldmiðill sem nýtir hagsveiflur. Ég held að það sé mikilvægt að þetta komi fram af því að verðbólgan í dag er manngerð, verðbólgan í dag er í beinu boði og einungis í boði ríkisstjórnar Íslands og ákvarðana hennar. Það er nefnilega málið, virðulegi forseti, að ef þú ert óreiðumaður með fé eða í tilfelli ríkisstjórnarinnar óreiðumaður með almannafé, þá skiptir ekki máli hvort Visa-reikningurinn kemur í krónum, evrum eða dollurum.
Svo er verið að blanda saman alls konar frösum um öryggis- og varnarmál og að þetta sé svo mikilvægt út frá öryggis- og varnarsjónarmiðum. Við erum í NATO. Við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin, öflugasta herveldi í heimi, og aðalfælingarmáttur Íslands felst í þessum varnarsamningi sem verður 75 ára núna í maí. Í því felast varnir landsins.
Því er haldið fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, að Sjálfstæðisflokkurinn treysti ekki þjóðinni, Sjálfstæðisflokkurinn af öllum flokkum. Það er ekkert fjær sannleikanum, virðulegur forseti. Sjálfstæðisflokkurinn treystir þjóðinni fullkomlega til að standa vörð um fullveldi Íslands. Við treystum þjóðinni fullkomlega til þess að kjósa það að völd Íslendinga yfir örlögum sínum verði áfram í höndum Íslendinga. Mín skoðun er hins vegar sú að hæstv. ríkisstjórn ætti í rauninni að spyrja hinnar einu sönnu spurningar í haust og það er: Viltu ganga í Evrópusambandið? Það er mín skoðun.
Því er líka haldið fram að heimurinn sé svo breyttur. Í hvaða heimi urðum við sjálfstæð þjóð? 129.000 manns, ein fátækasta þjóð Evrópu var búin að berjast fyrir því í áratugi að verða sjálfstæð þjóð. Og í hvaða andrúmi, þegar allir eru að tala um breyttan heim, varð þessi fátæka þjóð sjálfstæð? Jú, Evrópa og Asía voru rústir einar, rústir einar. Við erum búin að vera sjálfstæð þjóð og reka sjálfstæða utanríkisstefnu og utanríkisverslun á mörgum óvissutímum, í köldu stríði, í alls konar stríðum hér og þar í heiminum. Við höfum alltaf getað staðið keik sem sjálfstæð þjóð og verið sjálfstæð meðal þjóða. Maður veltir því fyrir sér með einmitt þá forfeður og formæður okkar í huga sem stóðu í stafni og báru í hjarta eld fullveldis og svo sjálfstæðis þessarar fátæku þjóðar hvort þetta fólk, stæði það hér í dag, velti þá fyrir sér: Til hvers var barist? Af því að það að ganga í Evrópusambandið er fullveldisafsal. Það er risastórt mál að við séum að ræða hér, Alþingi Íslendinga, orðin ein ríkasta þjóðin í dag, og velta fyrir okkur fullveldisafsali. Það er risastórt mál og ég treysti Íslendingum til þess að standa vörð um fullveldi landsins. Það er nefnilega þannig, virðulegur forseti, að á lýðveldishátíðinni 1944 stóð Jóhannes úr Kötlum í ræðustól og flutti ljóðið Land míns föður. Í lokaerindinu segir:
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu ísa og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.
Virðulegur forseti. Ég treysti Íslendingum til að kjósa um það að þjóðin verði áfram ung og frjáls, undir norðurljósum, og ráði sínum örlögum áfram í framtíðinni.