þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að við treystum þjóðinni og það er synd að sjá að ríkisstjórnin og meiri hlutinn hér skuli ekki gera það, a.m.k. treysta þau fólki ekki fyrir sannleikanum um þetta mál. Á svo mörgum sviðum þess er leitast við að draga upp ranga mynd eða þykjast bara ekkert skilja neitt í neinu, sem virðist vera orðið algengasta ráðið eftir umræðuna í dag, og vita ekki hvernig Evrópusambandið virkar; muna ekki eftir síðustu vegferð, tilraun til þess að ganga þar inn, og langar bara til að komast að einhverju, fá upplýsingar. En er ásættanlegt, að mati hv. þingmanns, að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu á fölskum forsendum?