157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:38]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir hans fyrri spurningu. Ég er þeirrar skoðunar að eina rétta spurningin sem eigi að spyrja þjóðina sé: Viltu ganga í Evrópusambandið? En ríkisstjórnin vill fara í einhvers konar vegferð sem verður ábyggilega þannig að umræðan nú í sumar og í aðdraganda kosninganna verður öll í einhverju skötulíki. Það er það sem ég hef áhyggjur af. Og hver eru samningsmarkmiðin? Hvað mun þetta kosta? Það veit enginn.