þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það eina sem við höfum fengið að heyra um samningsmarkmiðin er að við fáum ekki að vita hver þau eru fyrr en búið er að kjósa. Hvað annað en það undirstrikar betur hvernig til þessa máls er stofnað? Það á að taka eina sneið í einu, komast eitt skref í einu og plata svo fólk til að taka hið næsta alveg fram af bjargbrúninni. Getur hv. þingmaður tekið undir þá skoðun mína hvað þetta varðar, að það sem ríkisstjórnin sé í raun að reyna að plata fólk til að gera sé að gefa sér óútfylltan tékka upp á fullveldi landsins? Ríkisstjórnin vill fá óútfylltan tékka og ráða því sjálf hversu mikið hún gefur eftir af fullveldi okkar, auðlindum eftir atvikum, stöðu okkar sem sjálfstæðrar þjóðar.