þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Jens Garðar Helgason svaraði nú ekki spurningu minni um það hvort ríki Evrópusambandsins, Svíþjóð, Holland, Danmörk, Eistland o.s.frv., séu sjálfstæðar þjóðir eða ekki. Ég var að fiska eftir svarinu, sem ég þóttist nú vita sjálfur, að jú, ríki Evrópusambandsins reka til að mynda sjálfstæða utanríkisstefnu og hafa gert það jafnvel á svig við hvert annað í hinum ýmsu málum. Hv. þingmaður vitnaði í sinni ræðu í viðtal við hagfræðing Íslandsbanka sem birtist í dag. Það er ekki eins og það viðtal hafi verið bara lofræða um íslensku krónuna. Þar kemur t.d. fram að það fylgi talsverður viðskiptakostnaður því að vera með eigin mynt þar sem evran vegi jú þyngst í okkar utanríkisviðskiptum. Þá langar mig jafnframt að vitna í viðtal við yfirmann seðlabanka Króatíu þar sem hann segir:
„Áður en Króatía varð hluti af evrusvæðinu var Seðlabankinn aðallega í því að halda genginu stöðugu, og þegar krísuástand skapaðist, þá var það mikil áskorun fyrir lítið og opið efnahagskerfi; við þurftum að grípa mikið inn í, og þurftum að vera með stóran gjaldeyrisvaraforða, til að tryggja að við gætum sinnt þessu hlutverki, og það var kostnaðarsamt.“
Er þessi saga Króatíu, sem er nýjasta landið sem tekur upp evruna, ekki líka hluti af sannleikanum sem á að liggja uppi á borðinu (Forseti hringir.) þegar þjóðin tekur afstöðu í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu?