157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þjóðverjar hafa afsalað sér ákveðnum völdum yfir til Evrópusambandsins, alveg eins og við munum þurfa að gera. Í þeim skilningi, miðað við Íslendinga, er Þýskaland ekki jafn fullvalda ríki og Ísland, enda þurfum við að gera breytingar á stjórnarskránni. Ég held að hv. þingmaður sé sammála mér um að við þurfum að gera breytingar á stjórnarskránni. Þetta er ekki fríverslunarsamningur, þetta er ekki fríverslunarsamningur við Taíland eða einhver önnur lönd. Við erum að ganga í ríkjabandalag sem hefur það jafnvel á stefnuskrá sinni að stofna her. Þyrftu íslensk ungmenni að skrá sig í her? Ég velti því fyrir mér þegar við erum komin inn í þetta ríkjabandalag og erum orðin hluti af Evrópusambandinu sem ætlar að stofna her. Þetta er stóra málið. Við þurfum að afsala okkur ákveðnum hluta af sjálfstæði okkar og fullveldi og við skulum bara tala hreint út um það og ekki vera að blekkja þjóðina með einhverjum orðaleikjum. Við skulum bara tala hreint út við þjóðina.