þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég ætla að byrja á því að lýsa minni afstöðu til Evrópusambandsins svo að við þurfum ekki að eyða tíma í andsvörum í það hér á eftir. Hún liggur alveg ljós fyrir. Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr hvað það varðar að við teljum hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en við viljum þétt og gott samstarf við Evrópusambandið. EES-samningurinn er einn af okkar allra mikilvægustu viðskiptasamningum og þegar kemur að öryggis- og varnarmálum er NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin stærsta málið.
Virðulegur forseti. Þess vegna þarf engan að undra að hér er ekki mikil hrifning við einhvers konar vegferð ríkisstjórnarinnar inn í Evrópusambandið. Ég verð að segja, virðulegur forseti, að það kemur mér mjög á óvart að ríkisstjórnin vilji leggja í þá vegferð þegar ljóst er að það er ekki meiri hluti á Alþingi Íslendinga fyrir því að ganga í Evrópusambandið. Það hefur heldur ekki verið meiri hluti hjá almenningi í skoðanakönnunum sem birtar hafa verið en í flestum löndum hefur það nú verið kannski fyrsta skrefið að það sé almennur vilji, bæði hjá íbúum þess lands og hjá þjóðkjörnum fulltrúum. Yfirleitt er þetta kosningamál en það er nú ekki langt síðan við gengum til kosninga á Íslandi. Þá lagði formaður Samfylkingarinnar það mál svolítið til hliðar þó að það standi alveg skýrt á heimasíðu Samfylkingarinnar að þau vilji ganga í Evrópusambandið. Viðreisn var stofnuð sérstaklega utan um það að ganga í Evrópusambandið og afstaða þess flokks hefur verið skýr til inngöngu í Evrópusambandið. Afstaða Flokks fólksins kom líka skýrt fram í aðdraganda þessara kosninga, þau vildu ekki ganga í Evrópusambandið. Afstaða Sjálfstæðisflokksins er alveg skýr. Við höfum ekki áhuga á inngöngu í Evrópusambandið og það sama hafa Framsókn og Miðflokkurinn sagt skýrt. Bara fyrir rúmlega ári síðan var kosið og það er ekki meiri hluti fyrir því að ganga inn í Evrópusambandið á Alþingi Íslendinga vegna þess að það var heldur ekki meiri hluti hjá þjóðinni fyrir því að ganga inn í Evrópusambandið. En engu að síður, virðulegur forseti, erum við stödd hér að ræða þingsályktunartillögu um það að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið, eins og það er hér kallað.
Virðulegur forseti. Ég ætla bara aðeins að fara í gegnum þetta plagg sem hér er. Fyrst verð ég að segja að mér finnst það býsna rýrt, sérstaklega í ljósi þess að það var samið um þetta í stjórnarsáttmálanum og er eitt af allra stærstu málum Viðreisnar. Þá fyndist mér hefði verið hægt að ganga betur til verks, vera hér með ítarlegri greinargerð þar sem væri þá ljóst hvað felst í þessum spurningum. Skýrleikinn er nefnilega ekki nægjanlegur og það er ekki hægt að segja: Þetta snýst bara um það hvort fólk vilji vita meira með eða ekki. Það er blekkingarleikur hjá þjóðkjörnum fulltrúum, sem þekkja málið vel, að ganga fram með þeim hætti að setja sig bara rosalega einfalt mál: Viltu vita meira eða ekki? Hvað þýðir að segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu sem hér er boðuð? Hvað þýðir það? Er það sagt í greinargerðinni? Hvað kostar það? Hvaða tíma tekur það? Hver eru samningsmarkmið? Ekkert af þessu er sagt.
Virðulegur forseti. Eins og svo oft áður, oft í stærstu málum þessarar ríkisstjórnar, er auðvitað ákveðið að hunsa allt sem heitir verklagsreglur ríkisstjórnar; samráðsgáttin var virt að vettugi og hér kemur hæstv. utanríkisráðherra upp og segir: Hér er fallegasta samráð sem hægt er að hugsa sér og það er þjóðaratkvæðagreiðsla. En af hverju var þá ekki hægt að fara með þetta plagg í samráðsgátt? Lá þetta ekki ljóst fyrir að stjórnarflokkarnir ætluðu að fara í þessa vegferð? Hefði kannski verið skynsamlegt að hlusta þá á þjóðina í því? Bíddu, eru þetta skýrar spurningar? Finnst almenningi og sérfræðingum úti að þetta sé skýrt? Að kjósendum sé þá gert grein fyrir því hvað felst í já-inu og hvað felst í nei-inu? Hefði mögulega, frú forseti, verið bent á það að sú dagsetning sem hér er teiknuð upp, 29. ágúst, væri óskynsamleg? Sumir gætu jafnvel notað orðið ólýðræðislegt, að þing væri ekki að störfum þegar þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram í lok sumars. Ég hygg að það höfðu komið allmargar athugasemdir um þetta.
Reglur ríkisstjórnar ganga út á það að meta áhrif þeirra mála sem hér eru lögð fram á Alþingi, það á við bæði um lagafrumvörp og þingsályktunartillögur. En hér er ekkert áhrifamat. Það er ekki áhrifamat á ríkissjóð. Ég meina, hvað kostar þetta? Ég get með einhvers konar gúgli komist að því að beinn kostnaður við viðræðurnar 2010–2012 var um 300 milljónir, þýðingar voru um 590 milljónir og svo er þetta endalaust óbeinn kostnaður í ráðuneytum og stofnunum. Þetta jafngildir einhverjum mörgum milljörðum króna í dag. En það er ekki minnst einu orði á það í þessari þingsályktunartillögu, ekki einu orði. Fyrir utan það auðvitað að við vitum hvað þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf kostar. Það hefði kannski verið minnsta málið fyrir hæstv. ráðherra að koma því inn í þetta plagg, í það minnsta.
Ég nefndi aðeins tímasetninguna á þessu. Fyrir það fyrsta þá finnst mér framlagning þessa máls og kynning þess fyrir íslensku þjóðinni síðasta föstudag — reyndar aðeins fyrr fyrir einhverjum í Brussel því að þar voru búnar að birtast fréttir af þessu. Það var blásið til blaðamannafundar síðasta föstudag og kynnt að þetta plagg hér væri komið út úr ríkisstjórninni. Það er örstutt í sveitarstjórnarkosningar. Ég hef sjálf starfað á því sviði og veit hversu mikilvægt það er fyrir sveitarfélögin í landinu að fá rými til að ræða um málefni sveitarstjórnanna. Mér finnst þetta móðgun. Mér finnst þetta móðgun við sveitarstjórnarstigið að hæstv. ríkisstjórn skuli ákveða að koma inn með þetta á þessum tímapunkti. Það var búið að boða þetta, við vissum það, en mér datt ekki í hug að ríkisstjórnin myndi ákveða að koma með þetta inn í þingið fyrir sveitarstjórnarkosningar, enda er nægur tími til að gera það eftir sveitarstjórnarkosningar.
Í stjórnarsáttmálanum var talað um í síðasta lagi 2027. Ég verð að segja að ég held að þessi dagsetning hafi verið einstaklega illa hugsuð, þ.e. fyrir þjóðina og lýðræðislega umræðu. En ég átta mig á því að þessi tímasetning gæti gagnast ríkisstjórninni ágætlega. Það gagnast ríkisstjórninni að því leytinu til að nú erum við að ræða ESB, og væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður við það, en ekki stóru málin sem hæstv. forsætisráðherra lofaði í aðdraganda kosninga, stóru málin; efnahagsmálin, sleggjuna, vextina, verðbólguna nú eða heilbrigðiskerfið, menntakerfið eða innviði okkar. Nei, nú ræðum við um ESB og það gagnast ríkisstjórninni því auðvitað er ekkert af því sem ríkisstjórnin lofaði hér, eða flokkarnir sem hana mynda, fyrir kosningar náð fram að ganga, ekki neitt.
Það að hér séum við að ræða þessa hluti þegar ekki er meiri hluti fyrir því á Alþingi. Ég verð að viðurkenna það, frú forseti, að ég er nýlega komin frá Brussel og er í töluverðu alþjóðlegu samstarfi við aðra þingmenn. Þegar ég var í Brussel og heyrði vini mína í Norðurlandaráði segja: Jæja, Bryndís, eru þið að fara að kjósa um aðild að Evrópusambandinu? Því það er í fyrsta lagi það sem fréttir sögðu og í öðru lagi það sem öll hin ríkin halda auðvitað að sé að fara að gerast hér. Það þarf auðvitað að útskýra það mjög vel fyrir fólki. Nei, nei, nú ætlum við bara að spyrja: Viljið þið halda áfram eða taka upp þessar viðræður eða ekki? Svo síðar greiðum við atkvæði um sjálfa inngönguna ef til þess kæmi einhvern tímann. Þetta er auðvitað, talandi um svona villu í málflutningi, alveg augljóst. Ég sá nú bara að systurflokkar Samfylkingarinnar í Evrópuþinginu fögnuðu þessu mjög og töldu að verið væri að fara að kjósa um inngöngu í Evrópusambandið. Það er einn flokkur sem setti ESB-vegferð svo sannarlega á dagskrá fyrir síðustu kosningar. Sá flokkur fékk ekkert rosalega mikið fylgi hér í síðustu alþingiskosningum.
Virðulegur forseti. Það er af svo mörgu að taka og ég hefði viljað fara miklu víðar. Ég verð að óska eftir því að fá að koma því að í annarri ræðu. En í mínum huga er stóra spurningin þessi: Höfum við eitthvað að sækja inn í Evrópusambandið? Af hverju ætti land eins og Ísland, sem er ríkt af auðlindum, hefur gengið býsna vel í alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki, (Forseti hringir.) þar sem hagvöxtur hefur verið mikill og velmegun með því besta sem þekkist að sækja inn í Evrópusambandið? (Forseti hringir.) Það er alla vega áhugavert að sjá það af þeim ríkjum innan Evrópu sem vegnar hvað best eru þau ríki sem ekki eru innan ESB.