þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Ég er alveg sammála þingmanninum þegar hún segir að hér vanti skýrleika og að hér sé ákveðinn blekkingaleikur á ferð. Svo er hitt að það er að sjálfsögðu ekki þingmeirihluti fyrir þessu máli, það liggur í augum uppi. Það er ekki þingmeirihluti fyrir þessu máli, það náttúrlega æpir á mann. Síðan verð ég bara að viðurkenna að ég hafði ekki lesið þingsályktunartillöguna nógu vel í dag þegar þingmaður benti hér á að það væru engin samningsmarkmið í tillögunni. Þetta eru gömlu samningsmarkmiðin frá Jóhönnustjórninni — gömlu samningsmarkmiðin frá Jóhönnustjórninni undir kaflanum um meginhagsmuni og samningsmarkmið í viðræðum við Evrópusambandið, eins og segir í tillögunni, með leyfi forseta. Það er alveg með ólíkindum að leggja hér fram þingsályktunartillögu um áframhaldandi aðlögunarviðræður þar sem samningsmarkmiðin eru engin, bara vísað í gömul markmið Jóhönnustjórnarinnar sem er farin frá völdum. Nýja Jóhönnustjórnin sem tekin er við ætlar að hafa gömlu samningsmarkmiðin frá Jóhönnustjórninni hinni fyrri. Mig langar því að spyrja þingmanninn Bryndísi Haraldsdóttur út í hvort henni finnist ekki skjóta skökku við að í þessu þunna plaggi hérna sem liggur fyrir þingheimi varðandi áframhaldandi aðlögunarviðræður sé svo þunnur þrettándi; allur hræðsluáróðurinn sem þar kemur fram sem rökstuðningur fyrir því að nú þurfi að halda aðlögunarviðræðunum áfram.