þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni að þetta er þunnur þrettándi. Þetta er ekkert alvöru þingsályktunartillaga, greinargerð um svona risastórt mál. Ég fæ ekki skilið af hverju flokkur hæstv. utanríkisráðherra, sem hefur haft þetta á stefnuskránni í svona langan tíma, vandar ekki betur til verks. Ég bara skil það ekki, að hafa ekki farið í stórt samtal einhvern veginn við þjóðina eins og hér er lýst t.d. hvernig þetta var gert á sínum tíma. Ég hjó eftir því að hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom sérstaklega inn á það hvað þetta hefði verið gert með frábærum hætti síðast að marka þessi samningsmarkmið sem er svo eina sem vísað er í hér. Ég bara skil ekki af hverju ekki var ákveðið að forvinna þetta mál betur og koma með skýrari þingsályktunartillögu inn í þingið. Það eina sem við getum gert í þeirri stöðu í dag við að fá þetta mál svona í fangið er að vona að hv. utanríkismálanefnd takist að vinna málið með þeim hætti að þessir kostir verði skýrari, að spurningarnar verði skýrar, að ljóst sé hver samningsmarkmiðin eru þannig að kjósendur, þegar þeir ganga í þessa atkvæðagreiðslu, viti nákvæmlega hvað það þýðir að segja já eða nei.