157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svarið við síðustu spurningunni er nefnilega já. Ég held að það sé nákvæmlega sá leikur sem ríkisstjórnin er að spila hér. Það er nú aldeilis búið að ganga á í þessum þingsal þar sem við í aðdraganda fjárlaganna vorum að vara við aðgerðum ríkisstjórnar og vorum að segja hvað þær myndu þýða. Það var ekki bara okkar skoðun í Sjálfstæðisflokknum eða þeirra sem mynda hér stjórnarandstöðuna, heldur kom þetta fram í umsögnum eftir umsögnum til fjárlaganefndar. Þegar við höfum svo gengið á ríkisstjórnina og ráðherrana um hvað eigi að gera, hvernig eigi að bregðast við, þá var fyrsta svarið að það ætti ekki að gera neitt. Nú hefur reyndar hæstv. fjármálaráðherra boðað einhvers konar aðgerðir — ég sá hann í þinghúsinu í dag og væri nú gaman ef hann færi í ræðu um þetta mál — en við vitum ekkert hverjar þær eru. En ég held að þetta sé nákvæmlega það að ríkisstjórnin er að kaupa sér tíma til að reyna að finna út úr því hvernig hún ætlar að takast á við þessi vandamál. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að minna mig á það að það eru tvö mál (Forseti hringir.) sem Samfylkingin var kosningar eftir kosningar búin að reyna að bera á borð fyrir kjósendur. (Forseti hringir.) Það var stjórnarskrárbreyting og það var ESB, en kjósendur vildu það ekki. (Forseti hringir.) Það var annars vegar það og hins vegar það að Samfylkingin tók upp stefnu Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum og reyndar orkumálum líka sem gerði þeim líklega kleift að mynda núna ríkisstjórn.