þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni kærlega fyrir hans svar. Mig langaði bara aðeins að draga þetta fram hér vegna þess að fólk kemur og notar orðið aðlögunarviðræður, svolítið svona til að skapa einhverja neikvæða ímynd, en getur síðan ekki gefið mörg dæmi um hvað sé svona rosalega slæmt sem felist í sumri af þeirri aðlögun sem á sér stað. Ég skal bara gefa eitt dæmi eða tvö. Síðast þegar við vorum í aðildarviðræðum þá var það mat Evrópusambandsins út frá þeirra viðmiðum að hagtölusöfnun okkar væri í töluverðum molum. Við vissum hreinlega miklu minna um okkar samfélag en evrópsk samfélög vita um sín samfélög. Dæmi: Hjá Eurostat eru u.þ.b. 2.000 gagnasett fyrir hvert ríki, gagnasett Hagstofunnar eru u.þ.b. 150. Þarna er munur á því sem Evrópusambandið veit um sín samfélög og því sem við vitum um okkar samfélag. Við fórum í þessar aðlögunarviðræður, fengum IPA-styrki til að vinna í okkar hagtölusöfnun og niðurstaðan varð sú að það var farið í þá vinnu. Fyrir vikið vitum við líklegast mest um Ísland á árunum 2009–2013. Við vitum miklu meira um það tímabil í okkar sögu þegar kemur að hagtölum heldur en við vitum um ýmislegt fyrir það og eftir það út af því að við vorum látin aðlagast Evrópusambandinu á þessum tíma og vorum látin safna þessum hagtölum sem við hefðum annars ekki þurft að gera. Mér finnst þetta dæmi um eitthvað sem var sannarlega einhver efnisleg aðlögun. En var þetta endilega slæmt? Það held ég ekki. Ég held að það sé ekki slæmt að við séum að safna meiri upplýsingum um hagtölur. Eitt af því sem Evrópusambandið benti líka á er að við vorum með rosalega lítið af upplýsingum hjá Hagstofunni um okkar landbúnað. Upplýsingar um landbúnað á Íslandi liggja að mestu hjá hagsmunaaðilum, Bændasamtökunum, þau hafa nokkuð góð gagnasett um landbúnaðarframleiðslu og alla tölfræði sem snýr að því. En Hagstofan sjálf ef við skoðum þær tölur þá eru þær mjög fátæklegar miðað við það sem gerist á hagstofum annarra landa. Þarna er annað dæmi um það sem ég tel vera jákvæða aðlögun og ég ætla að biðja hv. þingmann að svara hvort honum finnist þetta ekki gott.
Ef spurningin á bara að vera: (Forseti hringir.) Viltu ganga í Evrópusambandið? Þá spyr ég: Er þá þörf á annarri atkvæðagreiðslu? Er þá ekki bara nóg að kjósa um þetta einu sinni? (Forseti hringir.) Þá hefur ríkisstjórnin fengið umboð til að klára málið alla leið og þarf þá síðari atkvæðagreiðslu?