157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:48]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Já, eflaust er það þannig eftir því hvernig þú lítur á það, hvað mönnum fannst gott eða slæmt í síðustu aðlögunarviðræðum. Það eru eflaust margir á þeirri skoðun að það hafi verið eitthvað þar, alla vega hafi það ekki verið ekki alslæmt. Ég ætla ekki að ganga svo langt, virðulegi forseti. Það sem við erum að ræða hérna er upplýsingagjöf í kringum þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem á að fara fram. Þess vegna verð ég eiginlega að taka undir það og segi að mér fannst þetta alveg ágætisumræða. Ég treysti aftur á móti einhverri öflugustu þjóð í heimi til að tryggja sér upplýsingar um eigið samfélag. Ég treysti einni ríkustu þjóð í heimi til að halda áfram að vera þjóð meðal þjóða án þess að fara í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið. Ég held að það sjái það allir og viti. Ef við horfum bara til þess hvar Ísland stendur á alþjóðamælikvörðum þá höfum við ekki þurft að vera í neinu aðlögunarferli til að komast á toppinn þar. Það gerðum við bara alveg sjálf. Við getum alveg haldið áfram án þess að vera að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða kíkja í pakkann. Ég treysti þjóðinni algjörlega til þess, ég treysti henni fyllilega til þess.

Ég held að við þurfum að ræða hvaða möguleika, ef einhverja yfir höfuð, fólk hefur sem vill skoða aðild að Evrópusambandinu varðandi einhvers konar samninga um okkar auðlindir sem hingað til hefur alveg verið skýrt að eru engir. Hvort við förum í aðlögunarferli og hér komi tölvukerfi til þar sem við förum að safna upplýsingum. Jú, það má til sanns vegar færa (Forseti hringir.) að það hafi á einhverjum tímapunkti gagnast okkur vel. Við eigum að taka þessa umræðu. Þetta voru góðir punktar hér. En gleymum því ekki að við þurfum (Forseti hringir.) að uppfræða fólkið í landinu um hvað aðlögunarviðræður snúast.