157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:57]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir afskaplega góðar og mikilvægar spurningar. Ég var ekki einn um það að hafa rekið upp stór augu þegar ég sá að það ætti að gera þetta á þessum tímapunkti. Ég nefndi það í ræðu minni að þetta myndi hafa áhrif á sveitarstjórnarkosningarnar. Ég nefndi líka að það gerist nú ýmislegt gott yfir sumarið en pólitísk umræða sé venjulega ekki á meðal þess, enda er oft talað um svokallaða gúrkutíð í fréttum að sumri.

Hv. þingmaður spyr mig hvort það væri skynsamlegt að færa dagsetningar til. Ég er á þeirri skoðun að ef þetta mál hefði á annað borð átt að koma fyrir þingið hefði það átt að vera seinni partinn í maí, eftir að sveitarstjórnarkosningar eru búnar, þar sem fólk er að fara að taka ákvörðun um það hverjum það treystir til að veita þjónustu í nærumhverfinu, tala um leikskóla, skólamál, velferðarmál og samgöngur. En við erum komin af stað með málið. Þess vegna myndi ég telja það vera þjóðinni til heilla, málinu til heilla, að fá lengri frekar en skemmri tíma til þess að kynna sér málin. Ég held það. Ég get ekki nefnt einhverja sérstaka dagsetningu í því en í ljósi þeirrar óreiðu sem er í umræðunni, og hún er að vaxa núna, þyrfti fólk meiri tíma til þess að kynna sér málið, hvað felst í aðlögunarviðræðum, hverjir eru kostir og gallar við inngöngu í Evrópusambandið o.s.frv. Upplýsingar eru grundvöllurinn að lýðræðislegri umræðu og þar eigum við að standa okkur vel.